Home > Uncategorized > Tilkynning um aflúsun á Haganesi

Tilkynning um aflúsun á Haganesi

Í þessari viku (14.-19. október) mun Arnarlax í samvinnu við Matvælastofnun nota Alphamax vet (deltamethrin)) aflúsunarefni á eldisstöð sinni við Haganes í Arnarfirði.

 

Alphamax er efni sem vinnur á laxalús og verður sett í kvíar í mjög litlu magni. Alphamax sem inniheldur deltamethrin verður blandað með sjó og sett 14 kvíar á eldissvæðinu.

Gul flögg verða sett upp á svæðinu á meðan á meðferð stendur.

 

Matvælastofnun og Fiskisjúkdómanefnd hafa heimilað umbeðna lyfjameðhöndlun.

 

Hver kví verður klædd með sérstökum poka sem kemur í veg fyrir öll vatnaskipti úr kvínni, Alphamax sett út í kví og látið vera í 30-60 mínútur. Að því loknu er efnið orðið óvirkt og er þá poki fjarlægður.

 

Nánari upplýsingar veitir Silja Baldvinsdóttir gæðastjóri Arnarlax:

silja@arnarlax.is

 

Fjölmiðlaupplýsingar veitir Björn Hembre, forstjóri Arnarlax:

bjorn@arnarlax.is