Home > Uncategorized > Tilkynning um aflúsun í Laugardal

Tilkynning um aflúsun í Laugardal

Tilkynning um aflúsun

Síðastliðinn fimmtudag veittu Matvælastofnun og Fiskisjúkdómanefnd heimild til lyfjameðhöndlunar, með baðlyfinu Alphamax, á eldissvæðinu Laugardal í Tálknafirði. Aflúsunarmeðferð hófst strax síðastliðna helgi og mun standa fram til vikuloka.

Alphamax (Deltamethrin) er efni sem vinnur á laxalús og er sett í kvíar í mjög litlu magni. Alphamax sem inniheldur deltamethrin er blandað með sjó og sett í alls 10 kvíar af þeim 18 kvíum sem eru á eldissvæðinu.

Hver kví verður klædd með sérstökum poka sem kemur í veg fyrir öll vatnaskipti úr kvínni, Alphamax sett út í kví og látið vera í 40-60 mínútur. Að því loknu er efnið orðið óvirkt og er þá poki fjarlægður.

Gul flögg verða sett upp á svæðinu á meðan á meðferð stendur.

Nánari upplýsingar veitir Kristian Leander Gillebo Sormo, stjórnandi sjódeildar: kristians@arnarlax.is 

Fjölmiðlaupplýsingar gefur Björn Hembre, forstjóri Arnarlax: bjorn@arnarlax.is