Aflúsunarmeðferð með Slice vet. á Haganesi og í Fossfirði
Frá og með næstu viku og fram yfir lok þeirrar þarnæstu mun Arnarlax, í samráði við Matvælastofnun, nota lyfjafóðrið Slice vet. (emamectin benzoate) á eldissvæðum fyrirtækisins við Haganes og í Fossfirði í Arnarfirði.
Slice vet. inniheldur lítið magn af emamectin benzoate og verður notað í alls 19 kvíar (5 kvíar í Fossfirði og í 14 kvíar á Haganesi).
Gul flögg verða sett upp á eldissvæðum á meðan á meðferð stendur.
Matvælastofnun hefur heimilað umbeðna lyfjameðhöndlun og leitað lögbundinna álita Fiskisjúkdómanefndar og Hafrannsóknarstofnunar.
Nánari upplýsingar veitir Kristian Leander Gillebo Sormo, stjórnandi fiskivelferðar og sjókvíaeldis Arnarlax: kristians@arnarlax.is
Fjölmiðlaupplýsingar veitir Björn Hembre, forstjóri Arnarlax: bjorn@arnarlax.is

