Home > Uncategorized > Tilkynning um aflúsun á eldissvæðinu Laugardal

Tilkynning um aflúsun á eldissvæðinu Laugardal

Í fyrstu og/eða annarri viku í september 2024 mun Arnarlax í samvinnu við Matvælastofnun nota Alphamax vet (deltamethrin)) aflúsunarefni á eldisstöð sinni við Laugardal í Tálknafirði.

Alphamax er efni sem vinnur á laxalús og verður sett í kvíar í mjög litlu magni. Alphamax sem inniheldur deltamethrin verður blandað með sjó og sett 8 kvíar af 9 kvíum á eldissvæðinu. Kvíin sem ekki verður meðhöndluð fer í slátrun á næstu vikum.

Gul flögg verða sett upp á svæðinu á meðan á meðferð stendur.

Matvælastofnun og Fiskisjúkdómanefnd hafa heimilað umbeðna lyfjameðhöndlun.

Hver kví verður klædd með sérstökum poka sem kemur í veg fyrir öll vatnaskipti úr kvínni, Alphamax sett út í kví og látið vera í 30-60 mínútur. Að því loknu er efnið orðið óvirkt og er þá poki fjarlægður.

Nánari upplýsingar veitir Silja Baldvinsdóttir gæðastjóri Arnarlax: silja@arnarlax.is

Fjölmiðlaupplýsingar gefur Björn Hembre, forstjóri Arnarlax: bjorn@arnarlax.is