Tilkynning um aflúsun á Haganesi
Frá og með 9. maí til miðja næstu viku mun Arnarlax í samvinnu við Matvælastofnun nota Salmosan vet. (Azamethiphos) aflúsunarefni á eldisstöð sinni við Haganes í Arnarfirði.
Salmosan er efni sem vinnur á laxalús og verður sett í 9 kvíar af 12 í mjög litlu magni. Salmosan sem inniheldur azamethiphos verður blandað með sjó og sett í allar kvíar á eldissvæðunum. Gul flögg verða sett upp á kvíum á meðan á meðferð stendur og þar til útskilnaðartími lyfs er liðinn sem er 15 daggráður.
Matvælastofnun og Fiskisjúkdómanefnd hafa heimilað umbeðna lyfjameðhöndlun.
Hver kví verður klædd með sérstökum poka sem kemur í veg fyrir öll vatnaskipti úr kvínni, Salmosan sett út í kví og látið vera í 3 klst. Að því loknu er efnið orðið óvirkt og er þá poki fjarlægður.
Nánari upplýsingar veitir Silja Baldvinsdóttir gæðastjóri Arnarlax:
456-0100
Fjölmiðlaupplýsingar gefur Björn Hembre, forstjóri Arnarlax: