Tilkynning um aflúsun í Hringsdal
Tilkynning um aflúsun
Í lok þessarar viku mun Arnarlax í samvinnu við Matvælastofnun nota Salmosan vet. (Azamethiphos) aflúsunarefni til að lúsameðhöndla 3 kvíar af 8 kvíum sem eftir eru á eldissvæðinu Hringsdal í Arnarfirði.
Hver kví verður meðhöndluð um borð í brunnbát.
Fiski verður dælt um borð í brunnbát og aflúsaður þar. Efni verður sett í blöndunartank um borð í brunnbát og blandað með fersku vatni og svo blandað í brunnana með sjó. Meðferð stendur yfir í brunnum í 3klst. Fylgst verður vel með súrefni og fiskivelferð á meðan á meðferð stendur. Meðferðarvatn úr brunnbát verður losað fyrir utan Arnarfjörð til að lágmarka umhverfisáhrif.
Salmosan vet. er efni sem vinnur á laxalús og verður sett í brunna brunnbáts í litlu magni eða 0,2gr/m3 eða í hverja 1.000ltr af meðferðarvatni.
Gul flögg verða sett upp á svæðinu á meðan á meðferð stendur.
Matvælastofnun hefur leitað lögbundinna álita Fiskisjúkdómanefndar og Hafrannsóknarstofnunar og og Fiskisjúkdómanefnd hafa heimilað umbeðna lyfjameðhöndlun.
Nánari upplýsingar veitir Kristian Leander Gillebo Sormo, stjórnandi sjódeildar: kristians@arnarlax.is
Fjölmiðlaupplýsingar gefur Björn Hembre, forstjóri Arnarlax: bjorn@arnarlax.is

