Í lok viku 37 og út viku 38 mun Arnarlax í samvinnu við Matvælastofnun nota Salmosan vet. (Azamethiphos) aflúsunarefni og Slice vet. (Emamectin-benzoate) lyfjafóður á eldisstöð sinni við Laugardal í Tálknafirði.

Salmosan er efni sem vinnur á laxalús og verður sett í kvíar í mjög litlu magni. Salmosan sem inniheldur azamethiphos verður blandað með sjó og sett í 13 kvíar af 21 á eldissvæðinu. Slice vet. verður notað í 8 kvíar. Gul flögg verða sett upp á svæðinu á meðan á meðferð stendur.

Hafrannsóknarstofnun og Matvælastofnun hafa heimilað umbeðna lyfjameðhöndlun.

Hver kví verður klædd með sérstökum poka sem kemur í veg fyrir öll vatnaskipti úr kvínni, Salmosan sett út í kví og látið vera í 30-60 mínútur. Að því loknu er efnið orðið óvirkt og er þá poki fjarlægður.

Nánari upplýsingar veitir Silja Baldvinsdóttir gæðastjóri Arnarlax.

silja@arnarlax.is

s. 456-0100