Home > Uncategorized > Tilkynning um aflúsun á Haganesi og Steinanesi í Arnarfirði

Tilkynning um aflúsun á Haganesi og Steinanesi í Arnarfirði

Frá og með 20. október og fram í nóvember mun Arnarlax í samvinnu við Matvælastofnun nota Salmosan vet. (Azamethiphos) aflúsunarefni á eldisstöðvum sínum við Haganes og Steinanes í Arnarfirði

Salmosan er efni sem vinnur á laxalús og verður sett í kvíar í mjög litlu magni. Salmosan sem inniheldur azamethiphos verður blandað með sjó og sett í allar kvíar á eldissvæðunum. Gul flögg verða sett upp á svæðinu á meðan á meðferð stendur.

Matvælastofnun og Fiskisjúkdómanefnd hafa heimilað umbeðna lyfjameðhöndlun.

Hver kví verður klædd með sérstökum poka sem kemur í veg fyrir öll vatnaskipti úr kvínni, Salmosan sett út í kví og látið vera í 30-60 mínútur. Að því loknu er efnið orðið óvirkt og er þá poki fjarlægður.

Nánari upplýsingar veitir Silja Baldvinsdóttir gæðastjóri Arnarlax, silja@arnarlax.is

Fjölmiðlaupplýsingar gefur Björn Hembre, forstjóri Arnarlax, bjorn@arnarlax.is

 

English:

Delicing announcement

From 20th October till November, Arnarlax will use Salmosan vet. (Azamethiphos) delicing medicine on farm sites Haganes and Steinanes in Arnarfjörður.

Salmosan is a medicine that works on salmon lice and will be put into cages in very small amount. Salmosan, containing azamethiphos, will be mixed with seawater and put into all cages on the farm sites. Yellow flags will be put up on cages while the delicing is being conducted.

The Icelandic Food and Veterinary Authority (MAST) and the Fish disease committee have approved the requested medicine use.

Each cage will be covered from bottom-up with a special bag which prevents all water exchange from the cage, medicine is being put into cage for a period of no less than 30 minutes and no more than 60 minutes. After that time, medicine has become inactive and the bag is removed.

Further info: Silja Baldvinsdóttir Quality manager Arnarlax, silja@arnarlax.is

Media information is provided by Björn Hembre, CEO, bjorn@arnarlax.is