Home > News > Tilkynning um aflúsun í Laugardal í Tálknafirði

Tilkynning um aflúsun í Laugardal í Tálknafirði

Í þessari viku mun Arnarlax í samvinnu við Matvælastofnun nota Alphamax vet (deltamethrin) aflúsunarefni á eldisstöð sinni við Laugardal í Tálknafirði.

Alphamax er efni sem vinnur á laxalús og verður sett í kvíar í mjög litlu magni. Alphamax sem inniheldur deltamethrin verður blandað með sjó og sett 13-16 kvíar af 21 kví á eldissvæðinu. Gul flögg verða sett upp á svæðinu á meðan á meðferð stendur.

Matvælastofnun og Fiskisjúkdómanefnd hafa heimilað umbeðna lyfjameðhöndlun.

Hver kví verður klædd með sérstökum poka sem kemur í veg fyrir öll vatnaskipti úr kvínni, Alphamax sett út í kví og látið vera í 30-60 mínútur. Að því loknu er efnið orðið óvirkt og er þá poki fjarlægður

Nánari upplýsingar veitir Silja Baldvinsdóttir, gæðastjóri Arnarlax. silja@arnarlax.is

Fjölmiðlaupplýsingar gefur Björn Hembre, forstjóri Arnarlax. bjorn@arnarlax.is

 

English:

Delicing announcement at Laugardalur in Tálknafjörður

During this week Arnarlax will use Alphamax vet (deltamethrin) delicing medicine on farm site Laugardalur in Tálknafjörður.

Alphamax is a medicine containing deltamethrin that works on salmon lice and will be put into 13-16 cages out of 21 in very small amount. Yellow flags will be put up on cages while the delicing is being conducted.

The Icelandic Food and Veterinary Authority (MAST) and the Fish disease committee have approved the requested medicine use.

Each cage will be covered from bottom-up with a special bag which prevents all water exchange from the cage, medicine is put into cage for no less than 30 minutes and no more than 60 minutes. After that time, medicine has become inactive and the bag is removed.

Further info: Silja Baldvinsdóttir, Quality manager silja@arnarlax.is

Media information is provided by Björn Hembre, CEO. bjorn@arnarlax.is